Fyrirhyggjulaus íslensk athafnasemi í hnotskurn

Frábær saga sem getur hægast verið myndlíking á fíflaskapnum sem einkennir íslenska athafnasemi undanfarna áratugi:  Togaraofvæðing, Fiskeldi án fyrirhyggju, Loðdýrarækt við hvern sveitabæ, Virkjum allt!, Einkavinavæðing ríkisfyrirtækja, Bankaútrásarsprengja, Álver über alles ....    Listinn er langur. 

Kjarni sögunnar er að loftbóluflugstjórinn í belgkörfunni lætur öll augljós viðvörunarmerki lönd og leið - hirðir hvorki um líf og limi nærstaddra né eignir sem kunna að skaðast af vitleysunni.  Hlustar ekki á neinn og heimtar vitleysuna í loftið hvað sem það kostar.

Ætlum við að halda áfram á sömu braut?


mbl.is Ómar Ragnarsson: „Skelfileg lífsreynsla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband